Þjónusta
Innviðir, stjórnun og uppbygging getu
Ég starfa á mótum stjórnsýslu og hugbúnaðargerðar. Megináherslan er á að byggja gervigreindarinnviði sem eru tæknilega sjálfstæðir, skilja íslenskt samhengi og uppfylla kröfur um persónuvernd og öryggi.
Við Háskólann á Akureyri hef ég leitt vinnu við fyrstu heildstæðu gervigreindarstefnu háskóla á Íslandi og stýrt smíði framleiðslukerfa eins og BORG og Arctic Tracker. Sú vinna byggir á þeirri sannfæringu að stefnumótun sé marklaus án tæknilegrar getu til að framfylgja henni.
Hér að neðan er yfirlit yfir þá aðferðafræði og þjónustu sem ég býð upp á fyrir stofnanir og fyrirtæki sem vilja byggja á eigin forsendum.
Aðferðafræði og arkitektúr
Kerfin sem ég byggi fylgja fjórum hönnunarreglum.
Óháð birgjum
Innviðirnir eru hannaðir þannig að hægt sé að skipta um tungumálalíkan án þess að endurbyggja kerfið. Þetta dregur úr áhættu ef birgjar breyta skilmálum eða verðlagningu.
Íslenskt mál- og menningarlæsi
Kerfin nota sérsniðin fyrirmæli og RAG (Retrieval Augmented Generation) til að vinna á íslensku með blæbrigðum sem skipta máli í stjórnsýslu.
Sjálfsforræði gagna
Viðkvæm gögn og ákvarðanatökuferlar eru á innviðum sem stofnunin stjórnar sjálf.
Gagnsæi í hönnun
Hvert kerfi er skjalað þannig að tækniteymi geti rakið hvernig niðurstaða var fengin. Forsenda ábyrgðar á úttaki kerfisins.
Sönnunin er í arkitektúrnum
Sumarhús Alpha v2.4
Ég sel ekki kenningar. Ég sel kerfin sem ég bý í. Þetta er arkitektúr eigin innviða minna, sem stjórnar öllu frá rannsóknum til hitastýringar heima. Sjálfhýst, fullvalda og skjalað niður á kóðalínu.
Cloud APIs
Anthropic
Claude Opus 4.6
Gemini
OpenRouter
Fjöllíkön
MacBook Pro
PAI stjórnstöð
Innviðir
Hercules
GPU tölvun
Proxmox
Sýndarvélastjóri
Docker VM
Gámahýsing
PocketBase
Gagnagrunnur + API
Staðarnet · IoT
S7-1200 PLC
Heitpottsstýring
Home Assistant
Snjallt heimili
Þegar ég byggi fyrir þig, koma sömu kröfur til framkvæmda.
Afhending
Öll verkefni enda með afhendingu til stofnunarinnar. Markmiðið er að innra teymið geti rekið kerfið sjálfstætt.
Afhendingarpakkinn inniheldur:
- Arkitektúrskjölun — Tæknileg yfirferð sem gerir innanhúss forriturum kleift að taka við viðhaldi og þróun.
- Stýrireglur — Kerfisfyrirmæli sem stýra hegðun líkansins, afhent sem opinn texti.
- Rekstrarhandbók — Leiðbeiningar um uppfærslur, kostnaðarstýringu og gæðaeftirlit.
Opinberar stofnanir
Greining og stefnumótun
Kortlagning á núverandi stöðu stofnunarinnar gagnvart gervigreind. Ábyrgðarskipting, háðir ferlar og samræmi við lög.
- Kortlagning á núverandi notkun og skuggagervigreind (Shadow AI)
- Áhættumat byggt á væntanlegri ESB gervigreindarreglugerð
- Gerð framkvæmanlegrar gervigreindarstefnu
Ráðuneyti, háskólar og opinberar stofnanir.
Stjórnunarrammar
ESB gervigreindarreglugerðin gerir kröfu um að stofnanir hafi stjórn á sínum kerfum. Ég aðstoða við uppsetningu stjórnunarferla.
- Innleiðing á BORG stjórnunarrammanum
- Undirbúningur fyrir kröfur um hááhættukerfi
- Hönnun eftirlitsferla með sjálfvirkri ákvarðanatöku
Stjórnendur sem bera ábyrgð á fylgni við reglugerðir.
Fyrirtæki
Gervigreindarinnviðir fyrir fyrirtæki sem vilja eiga kerfin sín og vernda hugverkarétt.
- Staðbundin gervigreindarmódel til verndar viðkvæmum gögnum
- Sjálfvirkni í verkferlum (Agentic Workflows)
- API-tengingar óháðar einstökum birgjum
Þjálfun og menntun
Vinnustofur og námskeið
Verkleg námskeið fyrir stjórnendur og sérfræðinga. Hvernig tæknin virkar, hvar hún bregst og hvernig á að stýra henni.
Á íslensku eða ensku.
Leiðsögn fyrir teymi
Vinna með lykilstarfsmönnum að uppsetningu verkferla og þróun eigin lausna.
Tækniteymi og millistjórnendur.
Fyrirlestrar
Fyrirlestrar um gervigreind, siðfræði hennar og samfélagsleg áhrif.
Dæmi um efni:
Ábyrgðarþoka
Hvernig sjálfvirkni dreifir ábyrgð þannig að enginn virðist bera hana.
Vitsmunaskuld
Hvað gerist þegar við útvistum dómgreind til kerfa sem við skiljum ekki.
Fjárfestingarbilið
Misræmið milli þess sem fjárfestar vilja (AGI) og þess sem fyrirtæki þurfa (áreiðanleg sjálfvirkni).
Tæknilegt fullveldi
Af hverju við þurfum að eiga innviðina okkar í stafrænum heimi.
Fyrirlestrar eru sérsniðnir að hverjum viðburði.
Opin þekking
Grunnþekking á gervigreind á ekki að vera falin bak við greiðsluveggi. Ég lít á það sem skyldu rannsakanda að miðla þekkingu um áhrif og virkni þessarar tækni til almennings.
Því held ég úti hlaðvarpi, skrifa greinar og birti kennsluefni opið. Það sem ég sel er sérfræðivinna við uppbyggingu flókinna kerfa, ekki aðgangur að almennum upplýsingum.
Sá sem skilur tæknina er betur í stakk búinn til að taka upplýstar ákvarðanir. Það er forsenda lýðræðis í tæknivæddu samfélagi.
Bakgrunnur
Ég er í fullu starfi og tek þátt í mörgum verkefnum samhliða. Þetta er bakgrunnurinn sem ég ber með mér.
- Kennari og fyrirlesari við Oxford Lifelong Learning — gervigreindarverkfræði og lágkóða gagnavísindi
- Meðhöfundur, The Irreducible Human: Life, Value, and Meaning in the Age of AI (Brill)
- MA ritgerð: Beyond Fragmentation: A Life-Value Alternative for AI Governance
- Nefndarmaður í matsráði Rannís
- Höfundur fyrstu heildstæðu gervigreindarstefnu háskóla á Íslandi
- Erdos Research Fellowship (ERF.ai)
- Smiður BORG (gervigreindarstjórnunarkerfi), Arctic Tracker (náttúruverndargreiningar, 473.000+ CITES skrár) og Gjöll (brunaöryggiskerfi)
- Fyrirlesari á Jafnréttisdögum 2026
- Þáttastjórnandi, Temjum tæknina hlaðvarp
- Fyrri ferill: 16 ár í bráðaþjónustu
Ef þú stendur frammi fyrir áskorunum sem tengjast gervigreind — hvort sem þær snúa að stefnumótun, stjórnun eða innviðum — og hefur áhuga á samtali, heyrðist gjarna.