
Þegar gervigreind verður dómari (1. hluti): Lexía sem Ísland má ekki missa af
Mál Háskólans á Bifröst afhjúpar alvarlega bresti í skilningi á tækni þegar mállíkanið Claude var nýtt til að meta starfsheiður fólks. Gervigreind er öflugt hjálpartæki en hræðilegur húsbóndi. Hér er fjallað um takmarkanir mállíkana, fágaða vitleysu „sophisticated bullshit“ og hvers vegna vélar eiga aldrei að sitja í dómarasæti þegar ákvarðanir hafa alvarlegar afleiðingar. Greinin byggir alfarið á opinberri fjölmiðlaumfjöllun og gerir ekki ráð fyrir að öll málsatvik séu fullkunn.

